Janssen Cosmetics
Marine Collagen Cream
Marine Collagen Cream
Couldn't load pickup availability
Marine Collagen Cream 50ml
Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum.
Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar.
Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.
Virk innihaldsefni:
- Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum.
- Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals).
- Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns.
Kremið hentar þurrum og rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum.
Share
