Algengar spurningar

Hvað er ampúla?

Ampúlur innihalda virk efni með ólíkum markmiðum fyrir leiðréttandi og uppbyggjandi áhrif á húðvefi.
Hver ampúla inniheldur virk efni í vökvaformi án allra auka- eða rotvarnarefna og kemur því í litlum einingum sem þarf að nota samstundis eftir að ampúlan hefur verið opnuð þar sem innihaldsefni missa virkni eftir stuttan tíma í snertingu við súrefni.


Hvað er peptíð?

Peptíð í snyrtivörum eru stuttar keðjur af amínósýrum, einskonar "byggingareiningar" sem líkaminn notar í próteinum, meðal annars í kollageni og elastíni. 
Í húðvörum styðja þau helst við útlit húðarinnar, þá sérstaklega öldrunareinkenni, þéttleika og raka.

Peptíð geta:

- Verið góður kollagen stuðningur sem gefa húðinni boð um að auka virkni sem tengjast      
   kollagenframleiðslu.
- Haft góð áhrif á þéttleika og teygjanleika húðarinnar með reglulegri notkun.
- Unnið vel á fínum línum og hrukkum.
- Hjálpað húðinni að viðhalda raka og einnig róað húðina.

Peptíð eru samt ekki öll eins, þau eru mismunandi með mismunandi virkni.
Þar má nefna:
- Palmitoyl Tripeptide-1 sem er góður kollagen stuðningur og einnig getur haft þéttandi  
   áhrif.
- Palmitoyl Tetrapeptide-7 sem tengist því að draga úr öldrun og getur einnig verið róandi.
- Acetyl Hexapeptide-8 sem er notað í vörum sem draga úr fínum línum.
- Copper Tripeptide-1 dregur úr öldrunareinkennum, er þéttandi og einskonar
   viðgerðarpeptíð.
-Palmitoyl Pentapeptide-4 er góður kollagen stuðningur og dregur úr fínum línum.

Peptíð er því frábært kostur í "anti-ageing" meðferðum því þau hafa oft mildari áhrif heldur en t.d tretinol.

Hvað er Retinol?
Retinol er A-vítamín sem er notað í húðvörum, þá sérstaklega gegn öldrun og ójafnri húðáferð.
Retinol getur
-dregið úr fínum línum og hrukkum með því að örva kollagenframleiðslu.
-jafnað húðáferð. 
-dregið úr litabreytingum og sólarskemmdum.
-haft endurnýjandi áhrif á húðfrumur og þannig hjálpað að losa um stíflaðar svítaholur og dregið úr bólumyndun.

Ef þú hefur aldrei notað retinol áður þá er mælt með að byrja rólega, 2-3 kvöld í viku og auka svo smám saman eftir þörfum og þoli. Hún getur orðið viðkvæm, þurr og svolítið flagnandi.
Mælt er með að nota góða sólarvörn og nærandi rakakrem á daginn.

Hvað er Kollagen?
Kollagen er prótein sem er eitt af helstu byggingarefnum húðarinnar. Kollagen gefur húðinni styrk, þéttleika og stuðlar að því að húðinn haldi uppbyggingu sinni.

Mikilvægt er að greina á milli kollagens sem borið er á húðina og efna sem örva kollagenframleiðslu í húðinni.

Kollagen í húðinni:
-heldur húðinni stinnri og þéttri.
-styður við teygjanleika.
-viðheldur uppbyggingu húðarinnar.
-dregur úr því að húðin myndi djúpar línur og hrukkur.

Með aldrinum minnkar náttúrulega framleiðslan á Kollageni. Þar getur UV-geislun og aðrir umhverfisþættir haft áhrif.

Kollagen í kremum og húðvörum: