Janssen Cosmetics
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
Couldn't load pickup availability
LONGEVITY CARE er lúxus húðumhirðulína frá JANSSEN COSMETICS þar sem nýjustu vísindi og öflug virk efni vinna saman að því að styðja við langlífi húðfrumna og varðveita styrk, lífskraft og unglegt yfirbragð húðarinnar. Markviss umhirða sem hjálpar húðinni að halda í náttúrulegan ljóma, þéttleika og seiglu með tímanum.
LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð.
Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína.
Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast.
Helstu eiginleikar
- Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
- Styrkir varnarhjúp húðarinnar
- Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
- Eykur lífskraft og ljóma
Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega húð sem er þreytt, rakaþurr eða hefur misst styrk, fyllingu og ljóma.
Berið á hreina húð að morgni og/eða kvöldi. Berið síðan á augnkrem og andlitskrem. Einnig má nota serumið sem kúrameðferð þegar húðin þarfnast aukins lífskrafts og ferskleika.
Helstu virku innihaldsefni
- Clotho – styður við endurnýjun og langlífi húðfrumna
- Ashwagandha-rótarþykkni – styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
- Evergreen – styður við myndun Sirt-1 og hjálpar til við að draga úr sykrun kollagens
- Níasínamíð – styrkir varnarhjúp og rakabirgðir húðarinnar
- Sakkaríðísómerat – sykrusamband sem líkist náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar
- Löng, stutt og krosstengd hýalúrónsýra – veita raka á mismunandi stigum
Share
