Janssen Cosmetics
LONGEVITY CARE Eye Cream 15ml
LONGEVITY CARE Eye Cream 15ml
Couldn't load pickup availability
LONGEVITY CARE er lúxus húðumhirðulína frá JANSSEN COSMETICS þar sem nýjustu vísindi og öflug virk efni vinna saman að því að styðja við langlífi húðfrumna og varðveita styrk, lífskraft og unglegt yfirbragð húðarinnar. Markviss umhirða sem hjálpar húðinni að halda í náttúrulegan ljóma, þéttleika og seiglu með tímanum.
Húðin í kringum augun er fíngerð og viðkvæm og þarfnast markvissrar umhirðu. LONGEVITY CARE Eye Creamendurlífgar augnsvæðið, styrkir húðina og veitir henni raka án þess að íþyngja henni. Silkimjúk áferðin fellur létt að húðinni og skilur hana eftir einstaklega mjúka og slétta.
Samsetning ashwagandha-rótarþykknis, Majestic Beauty, Clotho og resveratrols vinnur markvisst að því að varðveita unglegt útlit augnsvæðisins. Eye Beautifier, líftæknilega unnið þykkni úr sjávarörverunni E. crustaceum, hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, en Majestic Beauty stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun.
Við reglulega notkun verður augnsvæðið sléttara, ferskara og ljómandi og þreytumerki verða minna áberandi.
Helstu eiginleikar
- Dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun
- Hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Styrkir viðkvæma húð augnsvæðisins
- Gefur sléttara og bjartara yfirbragð
Hentar öllum húðgerðum og sérstaklega augnsvæði sem sýnir þurrk, þreytumerki, dökka bauga, þrota eða fínar línur.
Berið lítið magn á hreint augnsvæðið að morgni og kvöldi og nuddið mjúklega inn í húðina.
Helstu virku innihaldsefni
- Clotho – styður við endurnýjun húðfrumna
- Ashwagandha-rótarþykkni – styrkir varnarhjúp húðarinnar
- Eye Beautifier – hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
- Majestic Beauty – stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka
- Resveratrol – veitir andoxunarvörn
- Hýalúrónsýra og sakkaríðísómerat – veita mikinn og langvarandi raka
Share
