Skip to product information
1 of 1

Janssen Cosmetics

HYDRATION GIFT DUO

HYDRATION GIFT DUO

Regular price 7,900 ISK
Regular price Sale price 7,900 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Allt sem þarf í notalega dekurstund heima! Hydration Gift Duosameinar Deep Xpress Hydro Mask og Hyaluron3 Replenish Cream úr Dry Skin vörulínu JANSSEN COSMETICS ásamt mjúkri spöng sem er fullkomin til notkunar með húðumhirðu. Kemur í fallegum gjafapoka og er á frábæru tilboðsverði núna fyrir jólin.

Freistandi jólagjöf fyrir húðvöruunnendur og yndisleg leið til að kynna einhverjum góðar húðvörur.
Hentar öllum húðgerðum sem vantar raka og er einnig frábært val fyrir yngri húðgerðir.

DEEP XPRESS HYDRO MASK · 75 ml
Frískandi gelmaski með langvarandi rakagjöf

Kælandi gelformúlan veitir rakaþurri húð samstundis létti og dregur úr herpingstilfinningu vegna þurrks. Sérstaða maskans liggur í Hydro Express Complex: háþróaðri samsetningu hyaluronsýru, algínats og pullulans sem myndar ósýnilegt rakabindandi net á yfirborði húðarinnar. Þar geymast rakagefandi efni sem losna smám saman og veita húðinni jafna og langvarandi rakagjöf.

Rannsóknir á Hydro Express Complex sýna 25% aukningu á rakamagni húðarinnar eftir aðeins 30 mínútur og rakagefandi áhrif í allt að 48 klukkustundir eftir eina notkun. Við reglulega notkun getur aukið rakastig haldist í allt að fimm daga eftir síðustu ásetningu. Húðin verður ferskari, mýkri og sýnilega sléttari.

HYALURON³ REPLENISH CREAM · 30 ml
Þreföld hyaluronsýra fyrir djúpvirkandi rakagjöf og mjúka húð.

Næringarríkt krem sem gefur húðinni meira en skammvinna mýkt. Þrjár gerðir hyaluronsýru vinna saman að því að binda raka, viðhalda honum og draga úr ásýnd fínna þurrklína. Avókadóolía nærir og mýkir, á meðan hvítt lúpínuþykkni styrkir varnarhjúp húðarinnar og hjálpar henni að verjast rakatapi.

Kremið er því kjörið framhald af rakameðferð maskans: það bætir við næringu og rakavernd svo húðin haldist mjúk, slétt og vel nærð. Sérstaklega góð tvenna fyrir þurra og rakaþurra húð sem þarfnast aukins raka og næringar yfir vetrarmánuðina.

Mjúk hárspöng fylgir með fullkomin til að halda hárinu frá andlitinu við hreinsun húðarinnar og á meðan maski liggur á andlitinu.

View full details