Janssen Cosmetics
EVENING BEAUTY EDITION
EVENING BEAUTY EDITION
Couldn't load pickup availability
Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti.
Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði.
Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri.
Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu.
Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima!
Settið innfelur:
Retinol Lift Serum · 30 ml
Endurnýjandi og þéttandi serum með hjúpuðu retínóli, níasínamíði og hyaluronsýru. Retínól örvar kollagenmyndun, sléttir fínar línur og dregur við reglulega notkun úr sýnileika hrukka og litabreytinga. Níasínamíð styrkir varnarhjúp húðarinnar og hyaluronsýra veitir raka og fyllingu. Makadamíuolía og shea-smjör næra húðina og gefa henni silkimjúka áferð.
Lift Contour Cream Mask · 30 ml
Öflugur, endurnærandi kremmaski með sýnilega þéttandi og lyftandi áhrifum. Elastínörvandi peptíð styðja við elastínmyndun, bæta teygjanleika húðarinnar og vinna gegn sigi á slökum húðvefum. Saman með virkum rakagefandi og djúpnærandi innihaldsefnum sem varðveita raka og mýkt. Húðin fær öfluga orku, aukna fyllingu og þéttleika með frísklegra yfirbragði.
Fyrir hvaða húð?
Fyrir húð sem þarfnast endurnýjunar og aukins þéttleika, sérstaklega þegar fínar línur, litabreytingar, ójöfn áferð eða minni teygjanleiki eru farin að gera vart við sig.
Notkun
Retinol Lift Serum má nota á kvöldin, nokkrum sinnum í viku eða á hverju kvöldi eftir húðgerð og þoli, á undan því rakakremi sem notað er að jafnaði.
Notið maskann einu sinni til tvisvar í viku fyrir öflugri meðferð. Berið á hreina húð og látið liggja á í um 20 mínútur. Fjarlægið umfram maska með volgu þvottastykki og berið andlitsvatn á húðina. Berið því næst serumið á andlit, háls og bringu og ljúkið með viðeigandi kremi eftir þörfum.
*Forðist að bera serumið beint undir augun eða á augnlok.
*Húðin verður ljósnæmari við reglulega notkun með Retinol, forðist sól/sólbekki og hugið að sólarvörn.
Share
