Janssen Cosmetics
ENERGIZING 2-PHASE OIL SERUM | 30ML
ENERGIZING 2-PHASE OIL SERUM | 30ML
Couldn't load pickup availability
Næring, raki og ljómi í tveimur fösum
Lúxus tvífasa olíuserum með kavíarþykkni og perludufti sem veitir þurri húð ríkulega næringu og raka. Húðin verður silkimjúk og sléttari með ferskara yfirbragði og fallegum ljóma.
Á sérstöku jólatilboði – falleg gjöf og kærkomin viðbót við daglega húðmeðferð yfir vetrarmánuðina.
Caviar 2-Phase Oil Serum sameinar næringarríkar olíur og öfluga rakagjöf í formúlu sem veitir húðinni aukna mýkt, næringu og vernd.
Olíufasinn inniheldur arganolíu og squalane sem mýkja húðina, styrkja varnarhjúp hennar og draga úr rakatapi. Í rakafasanum vinna kavíarþykkni og perluduft með Saccharide Isomerate, glýseríni og hyaluronsýru að öflugri rakagjöf. Saman stuðla fasarnir að fyllri og líflegri ásýnd húðarinnar.
Helstu eiginleikar
- Veitir þurri og rakaþurri húð næringu og langvarandi raka.
- Styrkir varnarhjúp húðarinnar og verndar gegn rakatapi.
- Sléttir áferð húðarinnar og gefur henni silkimjúka viðkomu.
- Eykur ljóma og frískar upp á þreytt yfirbragð.
Notkun
Hristið vel fyrir notkun svo fasarnir blandist saman. Setjið 2–3 dropa í lófann og berið á hreina húð á andliti, hálsi og bringu kvölds og morgna. Látið serumið ganga inn í húðina og ljúkið með því kremi frá Janssen Cosmetics sem þið notið venjulega, ef þörf er á.
Serumið hentar sérstaklega vel með Caviar Luxury Cream þegar húðin þarfnast ríkulegrar næringar. Einnig má nota það eitt og sér eftir ástandi og þörfum húðarinnar.
Share
