Skip to product information
1 of 1

Janssen Cosmetics

2-PHASE OIL SERUM LUXURY DUO

2-PHASE OIL SERUM LUXURY DUO

Regular price 7,300 ISK
Regular price Sale price 7,300 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Lúxus kavíarmeðferð fyrir sléttari húð og unglegan ljóma

Ríkuleg næring, silkimjúk áferð og sýnilega sléttari húð. Caviar Luxury Duo sameinar nýja 2-Phase Oil Serum Energizing og Caviar Luxury Cream í endurnærandi tvennu sem veitir húðinni langvarandi raka, dregur úr ásýnd lína og gefur henni ferskara og fyllra yfirbragð.

Falleg jólagjöf fyrir þá sem vilja njóta áhrifaríkrar húðmeðferðar með lúxusívafi á frábæru tilboðsverði!

Tvær formúlur sem bæta hvor aðra upp

Serumið sameinar nærandi arganolíu og squalane með rakagefandi virkni kavíarþykknis, perludufts og hyaluronsýru. Tvífasa formúlan styrkir varnarhjúp húðarinnar, hjálpar henni að varðveita raka og skilur hana eftir silkimjúka.

Caviar Luxury Cream fullkomnar meðferðina með ríkulegri næringu og virkni gegn öldrunareinkennum. Kavíarþykkni styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og hyaluronsýra með stuttum og löngum keðjum veitir raka og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukkna.

Saman vinna vörurnar gegn þurrki og þreytulegu yfirbragði og stuðla að sléttari, fyllri og ljómandi húð. Samsetningin hentar sérstaklega þurri og rakaþurri húð og húð sem þarfnast aukinnar næringar og endurnýjunar.

Vörunar koma í fallegum Janssen Cosmetics gjafapoka:

  • 2-Phase Oil Serum Energizing · 30 ml
  • Caviar Luxury Cream · 20 ml

Notkun

Hristið serumið vel fyrir notkun svo fasarnir blandist saman. Berið 2–3 dropa á hreina húð á andliti, hálsi og bringu kvölds og morgna. Látið serumið ganga inn í húðina og berið síðan Caviar Luxury Cream yfir.

View full details