{"product_id":"peptide-serum-30ml","title":"Peptide Serum 30ml","description":"\u003cp\u003eHúðþéttandi serum sem gefur húðininni sýnilega sléttari áferð og aukinn húðljóma!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePeptide Serum\u003c\/strong\u003e sameinar tvö afar áhrifarík og virk peptíð með hyaluronsýrum og pullulani til að örva endurnýjun húðarinnar og draga úr sýnileika fínna lína og hrukka. Létt formúlan stuðlar að auknum þéttleika, mýkt og sléttari áferð húðarinnar sem öðlast unglegra yfirbragð og frísklegan ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBiopeptíð úr trönuberjum veita víðtæka virkni gegn sýnilegum öldrunareinkennum, þetta öfluga peptíð eykur þéttleika húðarinnar, dregur úr og minnkar dýpt á línum og hrukkum, styrkir náttúrulegan varnarhjúp hennar og stuðlar að ljómandi yfirbragði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAð auki draga Botox-líkt peptíð úr samdrætti í andlitsvöðvum, sem leiðir til minni sýnileika hrukka og sléttari áferð húðarinnar.\u003cbr\u003eNáttúrulega fjölsykran pullulan hefur samstundis húðþéttandi áhrif og hefur jafnframt langvarandi virkni.\u003cbr\u003eStutt- og langkeðju hyaluronsýrur veita húðinni aukna mýkt og fyllingu með öflugri rakagjöf. Fínar línur vegna rakaþurrks hverfa samstundis og húðin verður mýkri viðkomu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLétta O\/W-formúlan frásogast hratt niður húðlögin og þróar virkni sína til fulls með tímanum, sérstaklega þegar notað samhliða húðkremi úr DEMANDING SKIN línunni eftir þörfum húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVirk innihaldsefni:\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eCranberry Bio Peptide: \u003c\/strong\u003eÖflugt peptíð úr trönuberjum (vaccinium macrocarpon) með víðtæka virkni gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Eykur þéttleika húðarinnar, dregur úr hrukkum, styrkir náttúrulegan varnarhjúp hennar og stuðlar að auknum ljóma. Rannsóknir sýna aukinn ljóma hjá 94% notenda, 19% minnkun á dýpt hrukka og 7% minnkun á sýnilegum línum í kringum augun (krákufótum).\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eBotox-like peptides: \u003c\/strong\u003eAcetyl hexapeptide-8 er acetýlerað oligopeptíð sem dregur úr samdrætti í andlitsvöðvum og minnkar þannig ásýnd hrukka. Það hefur áhrif á svipbrigðalínur án þess að lama vöðvana og býður því upp á mildari og öruggari nálgun en botulinum toxin A.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003ePullulan: \u003c\/strong\u003eVeitir húðinni samstundis og langvarandi húðþéttandi áhrif. Samstundis áhrif: allt að 130% meiri húðþétting. Langvarandi áhrif: góð til mjög góð húðþétting hjá 70% þátttakenda í prófun.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eLangar keðjur af Hyaluron sýru:\u003c\/strong\u003e Myndar raka-bindandi filmu á yfirborði húðarinnar og verndar hana þannig gegn þurrki. Sléttir úr fínum línum og hrukkur verða síður áberandi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eStuttar keðjur af Hyaluron sýru: \u003c\/strong\u003eSíast niður í efri lög hornlagsins og hjálpa til við að binda raka þar. Veita húðinni langvarandi raka og draga úr fínum línum og hrukkum með sléttandi eiginleikum.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48606311612671,"sku":null,"price":7500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0772\/2591\/8719\/files\/jpg.Peptide-Serum-30ml-Comp--scaled.jpg?v=1780143730","url":"https:\/\/www.muska.is\/products\/peptide-serum-30ml","provider":"Muska","version":"1.0","type":"link"}